Tvær kirkjur
Í fór í tvær kirkjur í dag og ég var að koma inn í þær báðar í fyrsta sinn á æfinni. Klukkan tíu í morgun vorum við Hlynur mættir í Kirkjuvogskirkju í Höfnum þar sem við fluttum tvö lög á sérstakri menningaruppákomu. Það tók aðeins á að vera ferskur svona á sunnudagsmorgni, sérstaklega þar sem við vorum að spila í fimmtugsafmæli í Njarðvík kvöldinu áður. En stundin var falleg og sérstök.
Sex klukkutímum síðar var ég mættur í Útskálakirkju í Garði í þetta sinn með allri fjölskyldunni á aðra menningarsamkomu. Nú var ég í hlutverki áhorfendans en Eivör Pálsdóttir sá um tónlistarflutninginn. Það hafa líklega verið um tíu sinnum fleiri áhorfendur í Garðinum en í Höfnunum, enda aðeins þekktari tónlistarmaður á ferðinni þar ... og vá hvað hún Eivör nær mér í hvert einasta skipti sem ég sé hana spila. Hún ræður yfir einhverjum göldrum sem valda því að tónlistin hennar nær inn fyrir allt hjá mér og beint inn í kviku tilfinninganna. Stundum er ein rödd og einn gítar allt sem þarf til að taka heilan sal fullan af fólki á flug með sér.
Eftir situr minning um góðan dag sem ég eyddi með því fólki sem ég elska mest. Tveir tónleikar, tvö hlutverk, tveir hugarheimar, tvö þorp, tvær kirkjur.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home