Rutger Gunnarsson
Það er hægt að hlusta á tónlist á svo mismunandi máta. Sem dæmi þá er maður stundum að leita eftir hughrifum sem fæst af heildarmyndinni, stundum hlustar maður eftir frábærum texta og stundum hlustar maður eftir einstaka hljóðfæri. Ég dett oft í það að hlusta eftir trommuleik eða bassaleik þegar ég hlusta á tónlist. Ég ber mikla virðingu fyrir trommu- og bassaleikurum sem oftar en ekki eru ábyrgir fyrir því að líma tónlistina saman, þeir skapa grunninn sem hinir tónlistarmennirnir byggja síðan á. En þeir bestu gera meira en að byggja grunn, þeir skapa listaverk sem lifa þá sjálfa. Oft eru bassa- og trommuleikararnir þeir sem falla í skuggan, en án þeirra væri enginn skuggi.
Einn þessara snillinga er Rutger Gunnarsson. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan ég uppgötvaði þennan snilling. Við hjónin vorum í léttum húsverkum og vantaði einhverja líflega tónlist undir til að létta okkur verkin. Kannski í ljósi bíómyndavinsælda í sumar varð safndiskurinn Gold með ABBA fyrir valinu. Eins og flestir jarðarbúar hef ég ótal sinnum heyrt ABBA-lögin hljóma, en sjaldan hef ég þó hlustað. Í þetta skiptið var ég þó með eyrun í sambandi og ég tók eftir því hversu framúrskarandi bassaleikurinn var á öllum lögunum hjá Svíunum. Hreinlega svo góður að mér féllust hendur, þarna var greinilega einhver snillingur á ferðinni sem ég þurfti að kynnast betur. Eftir smá rannsóknarvinnu á netinu komst ég að því að sá sem er ábyrgur fyrir bassanum í flestu því sem ABBA gerði var maður að nafni Rutger Gunnarsson.
Rutger Gunnarsson er frá Linköping í Svíðþjóð og er fæddur það ágæta ár 1946. Í heimabænum spilaði guttinn á bassa í nokkrum rokkböndum en lærði líka á gítar og varð læs á nótur. Hans komst inn í konunglega Tónlistarháskólann í Stokkhólmi og sumarið sem hann var 26 ára varð hann bassaleikari hljómsveitarinnar Hootenanny Singers, sem stuttu seinna urðu ABBA. Þetta sama sumar spilaði hann í fyrsta skipti inn á lag í stúdíói. En örlögin voru ráðin hjá Rutger. Næstu ár var hann upptekinn við að spila bassa fyrir þá ABBA-félaga Björn og Benny, bæði í upptökum og á tónleikum. Hann er ábyrgur fyrir bassanum í nánast öllu efni sem ABBA gaf út, auk þess sem hann fór að sjá um strengjaútsetningar á seinni plötum hljómsveitarinnar. Það má segja að tónlist ABBA hafi verið líf Rutger Gunnarsson síðustu 35 árin. Eftir að hljómsveitin hætti hélt hann áfram að vinna með Björn og Benny að nokkrum verkefnum auk þess að spila tónlist ABBA með hinum og þessum. Hann hefur þó einnig komið við sögu á plötum hjá Elton John, Celine Dion og Westlife (og einhverjum fleirum) og þá oftast sem útsetjari strengja.
En það er bassaleikarinn Rutger Gunnarsson sem ég hrífst af. Ég læt hér fylgja gott dæmi um bassaleik hans. Í laginu "Money, Money, Money" heyrist vel hversu snjall og hugmyndaríkur bassaleikari Rutger Gunnarsson er. Ég er viss um lagið þekkja allir, en hlustið eftir bassanum. Svona gera bara snillingar.


