Vanmetinn trommari
Bítlaplatan Rubber Soul var að rúlla yfir geislann hjá mér. Ótrúlega góð plata og margar skemmtilegar pælingar í gangi. Verð að segja að trommuleikurinn á þessari plötu er frábær, einfaldur en frjór. Held að það sé einfaldlega ekki rétt þegar menn eru að saka Ringo Starr um að vera slakur trommari. Á Rubber Soul á hann a.m.k. stjörnuleik.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home