1.3.08

"Þá dreymir mig um bassann..."


Við Hobbitarnir vorum að spila okkar mánaðarlega Paddy's-gigg um síðuastu helgi. Það er í sjálfu sér ekkert fréttnæmt, nema að það var nokkuð þétt og góð stemmning alla helgina (sem er reyndar oftast þegar við spilum þar).

Það sem var sérstakt við þessa helgi var að hálftíma áður en við ætluðum að vera mættir á föstudagskvöldi fékk ég símtal frá Pálmari sem spurði hvort hann mætti ekki kíkja við og kítla bassann í nokkrum lögum. Ég hélt það nú og klukkutíma síðar var Pálmar mættur með hljóðfærið stillt og magnarann uppsettan á sviðinu á Paddy's. Þessi nokkur lög sem hann ætlaði að spila með okkur fjölgaði óðum og þegar upp var staðið spilaði kappinn með okkur allt kvöldið. Okkur Hlyni fannst æðislegt að hafa bassann undir með okkur, það gaf tónlistinni óneitanlega meiri botn og fyllingu ... og miðað við viðbrögðin sem við fengum voru áheyrendur ánægðir með þessa nýbreytni hjá okkur. Fyrir utan það hvað Pálmar tekur sig vel út á sviðinu. Þannig að ég geri orðin hans Villa úr Höfnunum að mínum og segi "þá dreymir mig um bassann, sem botninn fylla kann". Velkominn aftur Pálmar þegar þú vilt.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Váááá.... ef þú bara vissir hvað ég fyllist miklu stolti þegar ég sé hvað ég á hæfileikaríka ættingja. Vildi bara koma því á framfæri að þið eruð öll frábær, mig hlakkar ekkert smá til að koma í sumar og vonandi sjá ykkur Hobbitana spila og sletta úr klaufunum.
Kveðja úr vorinu í Köben,
Sara

5. apríl 2008 kl. 10:56  

Skrifa ummæli

<< Home