Heiði verður til
Ég hef haft soldið gaman af því að fylgjast með Sjálfstæðismönnum í Reykjanesbæ rembast við að að búa til nýja heiði hér á Suðurnesjunum. Þeir hafa gefið byggðinni sem Bandaríkjaher skyldi eftir nafnið Vallarheiði. Þetta er soldið skondið í ljósi þess að hún og flugvöllurinn eru á Miðnesheiði og fara kannski aðeins inn á Hafnaheiðina. Ég vissi hins vegar ekki til þess að það væri til nein heiði á Suðurnesjum sem héti Vallarheiði. En þeir Reykjanesbæjingar mega s.s. gefa hverfum í sínu bæjarfélagi hvaða nafn sem þeim þóknast. Við Sandgerðingar þurfum kannski bara að fara að þeirra fordæmi og vera duglegri að merkja okkur þá hluti sem tilheyra okkur og fara að tala um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Sandgerði og Sandgerðisflugvöll.
En talandi um að búa til heiði. Fyrsta lagið sem Matti Óla tók upp á sínum ferli var einmitt lagið Heiðin, sem er skemmtilega raunsæ lýsing á þeirri lágu og sumir myndu segja ljótu heiði sem Miðnesheiðin er. Og mannskæð er hún því þær eru ekki margar heiðarnar hérlendis sem hafa tekið jafnmörg mannslífin. Mér hefur alltaf þótt vænt um þetta lag hans Matta og er svo heppinn að hafa fengið að flytja það nokkrum sinnum með honum. En hlustið bara sjálf á þessa upptöku af laginu sem var gerð í Studío Lubba hjá Inga Þór í Keflavík einhvern tímann á árinu 2004 og er að finna á þeirri merku plötu Aftan festival 1.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home