Að fá glaðning í hús
Ég fékk glaðning í hús í gær. Smári kíkti við hjá mér og lét mig hafa eintak af plötunni frá Tommygun Preacers sem kemur væntanlega út núna með vorinu, en hún hefur fengið heitið Jawbreaker. Ég er búinn að bíða lengi eftir alvöru útgáfu frá þessari þéttustu rokkhljómsveit Suðurnesja (og þó víðar væri leitað) og loksins er platan tilbúin.
Á gripnum eru 10 tuddarokklög sem eru hvert öðru betra. Maður er fljótur að hverfa úr freranum hér og í topplausan Mustang '66 á ferðinni eftir eyðimörkinni í Arizona með sólina í augunum og heitan vindinn í hárinu. Eins og oft er með góða rokkplötur er sándið tímalaust og þétt. Til hamingju Tommygun Preachers með klassa plötu, ég hlakka til að sjá hana í hillum plötubúðanna og heyra hana á útvarpsstöðvunum.

2 Comments:
besta bandið í bænum
úúú ég hlakka til að hlusta.
Gaman að sjá að þú sért búinn að virkja bloggið aftur, alltaf gaman að lesa tónlistarfróðleik.
Skrifa ummæli
<< Home