Olitorian

29.2.08

Kalt fyrir frægðina


Við Hobbitarnir skelltum okkur í myndatöku í gær. Við fengum Gúnda vin okkar til að smella nokkrum myndum af okkur sem á að nota í kynningarefni. Hann langaði að hafa vetrarstemmningu í myndunum og því var haldið út í frostið og rokið í leit að réttu aðstæðunum.

Við stoppuðum loks á Stafnesi þar sem ljósmyndaranum fannst kjörið vetrarumhverfi. Haglél og stingandi vestanátt stoppa ekki Hobbitana, enda alvöru karlmenn þar á ferðinni, og vetrarstemmningin náðist á filmu. Mönnum var reyndar soldið kalt þegar þeir komumst aftur inn í bílinn, en það er nú allt í lagi að verða dálítið kalt fyrir frægðina.

2.2.08

Að fá glaðning í hús


Ég fékk glaðning í hús í gær. Smári kíkti við hjá mér og lét mig hafa eintak af plötunni frá Tommygun Preacers sem kemur væntanlega út núna með vorinu, en hún hefur fengið heitið Jawbreaker. Ég er búinn að bíða lengi eftir alvöru útgáfu frá þessari þéttustu rokkhljómsveit Suðurnesja (og þó víðar væri leitað) og loksins er platan tilbúin.

Á gripnum eru 10 tuddarokklög sem eru hvert öðru betra. Maður er fljótur að hverfa úr freranum hér og í topplausan Mustang '66 á ferðinni eftir eyðimörkinni í Arizona með sólina í augunum og heitan vindinn í hárinu. Eins og oft er með góða rokkplötur er sándið tímalaust og þétt. Til hamingju Tommygun Preachers með klassa plötu, ég hlakka til að sjá hana í hillum plötubúðanna og heyra hana á útvarpsstöðvunum.

1.2.08

Heiði verður til

Ég hef haft soldið gaman af því að fylgjast með Sjálfstæðismönnum í Reykjanesbæ rembast við að að búa til nýja heiði hér á Suðurnesjunum. Þeir hafa gefið byggðinni sem Bandaríkjaher skyldi eftir nafnið Vallarheiði. Þetta er soldið skondið í ljósi þess að hún og flugvöllurinn eru á Miðnesheiði og fara kannski aðeins inn á Hafnaheiðina. Ég vissi hins vegar ekki til þess að það væri til nein heiði á Suðurnesjum sem héti Vallarheiði. En þeir Reykjanesbæjingar mega s.s. gefa hverfum í sínu bæjarfélagi hvaða nafn sem þeim þóknast. Við Sandgerðingar þurfum kannski bara að fara að þeirra fordæmi og vera duglegri að merkja okkur þá hluti sem tilheyra okkur og fara að tala um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Sandgerði og Sandgerðisflugvöll.

En talandi um að búa til heiði. Fyrsta lagið sem Matti Óla tók upp á sínum ferli var einmitt lagið Heiðin, sem er skemmtilega raunsæ lýsing á þeirri lágu og sumir myndu segja ljótu heiði sem Miðnesheiðin er. Og mannskæð er hún því þær eru ekki margar heiðarnar hérlendis sem hafa tekið jafnmörg mannslífin. Mér hefur alltaf þótt vænt um þetta lag hans Matta og er svo heppinn að hafa fengið að flytja það nokkrum sinnum með honum. En hlustið bara sjálf á þessa upptöku af laginu sem var gerð í Studío Lubba hjá Inga Þór í Keflavík einhvern tímann á árinu 2004 og er að finna á þeirri merku plötu Aftan festival 1.