Olitorian

27.1.08

World Party - Egyptology


Ég hef ákveðið að vekja þetta blogg mitt aftur til lífsins. Eins og áður verða allar færslur tengdar tónlist á einn eða annan hátt. Eins ætla ég að vera með þá nýbreyttni að fjalla um einhverja ákveðna plötu og gefa smá tóndæmi af henni (vona að enginn lögsæki mig fyrir ólöglega dreifingu tónlistar á netinu). Ég lofa engu um það hversu duglegur ég verð.


Fyrsta platan sem ég ætla að fjalla um er Egyptology með eins manns hljómsveitinni World Party, en ég fann hana í mjög svo sniðugum 200 króna útsöludunknum í Hljómvali í Keflavík. Þessi plata kom út árið 1997 og á henni eru að finna lög sem voru tekin upp á fjögura ára tímabili, frá 1993 til 1997. Það er Walesverjinn Karl Wallinger sem gerir allt á þessari plötu, semur, spilar, stjórnar upptökum og syngur. Hann vann það sér aðallega til frægðar að vera meðlimur í hinni merku sveit Waterboys, en hefur einnig fengist við ýmis verkefni og vann m.a. að fyrstu plötu Sinéad O'Connor The Lion and the Cobra. World Party stofnaði hann árið 1987 og er Egyptology fjórða platan sem sveitin gaf út. Þessi plata er ágætt dæmi um lagahöfundaplötu með fínum popplögum þó svo að flutningurinn sé ekki alltaf sá sterkasti. Á plötunni er að finna lög sem aðrir hafa tekið upp seinna s.s. lagið She's The One sem ódámurinn Robbie Williams gerði vinsælt, en mér finnst nú betra hér í upphaflegu útgáfunni. Það er gaman að benda á það að platan á það sameiginlegt með Háloftsplötu Flugunnar að enda á lagi sem nefnist Ávallt (Always). Hér eru þrjú tóndæmi af plötunni:

Klassart á Airwaves

Klassart spilaði á Iceland Airwaves í haust. Konsertinn var á Organ á miðvikudagskvöldi og tókst ágætlega.

Þessi mynd er frá tónleikunum og sýnir mig, Fríðu og Smára í action (Hlynur, Óli og Pálmar eru þarna einhvers staðar líka, þó þeir sjáist ekki á myndinni).

Hér er lítið tóndæmi frá Klassart:

Klassart - Light Up