19.4.06

Stundum verða hlutir annað en þeim er ætlað í upphafi

Ég efast um að Halli Valli og félagar í Ælu hafi ætlað sér að gera barnaplötu. Ég hef verið að renna plötunni þeirra soldið í gegn hérna heima og aðrir fjölskyldumeðlimir ekki komist hjá því að hlusta með mér. Nú er svo komið að síðasta lagið á plötunni (sem ég veit ekki enn heitið á) er orðið uppáhaldslagið hjá Júlíusi Viggó syni mínum (sem verður 5 ára í næstu viku) og hann syngur “dabb da dó” í tíma og ótíma. Hann vill fá að heyra lagið aftur og aftur og er búin að láta vini sína hlusta líka og þeir eru farnir að syngja og dansa með. Það er nefnilega svo merkilegt við tónlist (og alla list) að þegar listamaðurinn er búinn að gefa verkið út og sleppa af því hendinni eignast það eigið líf. Tónlistamaðurinn getur reynt að hafa áhrif á það hvaða örlög verkið fær, en í raun flýgur það á sínum eigin vængjum. Menn geta haldið að þeir séu að búa til meistarastykkið, en enginn vill hlusta og því deyr verkið. Eða þá að þeir asnast til að taka upp lókal brandara sem óvart eignast sjálfstætt líf (sbr. að Standpínulagið er spilað í partíum um allt land, en fáir vita hver höfundurinn Smári er). Eða jafnvel að menn taka upp pönkplötu og enda á toppnum á vinsældarlistum barnanna. Stundum verða hlutir nefnilega annað en þeim er ætlað í upphafi.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

[url=http://www.playatonlinecasinos.com/]online casinos[/url] [url=http://www.casinovisa.com/how-to-play-online-roulette/]slots[/url] , [url=http://www.concordiaresearch.com/]casino online[/url] , [url=http://www.realcazinoz.com/du]online blackjack[/url] , [url=http://www.avi.vg/category.php?a=sex4sexx&cid=151]sex dolls[/url]

19. ágúst 2011 kl. 20:52  

Skrifa ummæli

<< Home