(S)Æla
Fékk í hendurnar vinnueintak af fyrstu plötu Ælu (sem er ekki enn komin út). Halli Valli læddi því á mig með ósk um að ég gerði tillögu að fyrstu "smáskífunni". Eftir eitt rennsli lagði ég til að það yrði lagið "Pirringur". Eftir að hafa hlustað aðeins betur á lögin 15 komst ég þó á þá skoðun að "Magnaralagið" væri betra til sigra hug og hjörtu útvarpsmanna. Annars er uppáhaldslagið mitt þessa dagana síðasta lagið á plötunni, en ég veit því miður ekki hvað það heitir (hentar þó líklega illa til útvarpsspilunar). Einfaldlega snillarsmíði þetta lag, frumlegt og grípandi og þróast í óvæntar áttir. Maður vill heyra það aftur og aftur.
Mér finnst þetta frábært verk hjá Ælu. Örugglega einn af bestu frumburðum íslenskrar hljómsveitar frá upphafi og það þarf snilldar snilldarverk til að koma í veg fyrir að þetta sé plata ársins. Hún er kröftug, sándar vel, grípandi og frumleg. Trúi ekki öðru en að einhver útgefndinn taki sénsinn á að gefa verkið út því hér er efni sem gæti sigrað heiminn. Segi bara við Halla Valla og félaga, drífið í að koma plötunni út svo fleiri en vinir og vandamenn geti notið.
Síðan verð ég að segja að ég er stoltur að vera hluti af þeim frábæra hópi sem stendur að baki einstaklega líflegu tónlistarlífi á Suðurnesjum. Það eru frábærir hlutir að gerast í hverju horni og þó svo að krafturinn og frumleikinn sé einkennandi eru allir að gera hlutina með sínum hætti. Ég man ekki eftir annari eins grósku, krafti og fjölbreytileika (dæmi: Matti Óla og Æla, ólíkt en samt hluti af sömu tónlistarklíkunni) í tónlistinni hér á Suðurnesjum. Frábært.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home