Það er erfitt að toppa sjálfan sig
Það getur verið erfitt að toppa sjálfan sig. Hinir íslensku Stuðmenn eru gott dæmi um þetta. Þeir gerðu bíómynd í fyrra (eða í hittiðfyrra) sem heitir "Í takt við tímann". Frekar slöpp mynd með hálf máttlausri tónlist. Hún barst hér inn á heimilið mitt á DVD-formi (aðallega af því að Katrín Júlía birtist í henni í nokkrar sekúndur sem blaðamaður á Leifsstöð) og er búin að fá að rúlla í gegnum tækið einu sinni eða tvisvar. Þetta á að vera grínmynd, en ég hló ekki. Annað hvort er myndin slök, eða ég bara með skrítinn húmor. Fyrir rúmum tuttugu árum gerðu Stuðmenn aðra mynd sem hét "Með allt á hreinu" sem er klassísk í íslenskri kvikmyndasögu. Ég veit ekki alveg hver tilgangur þeirrar seinni er, en hún er dæmd til þess að lifa í skugga þeirrar eldri og mun þess vegna aldrei ná neinu flugi.
Það mætti færa rök fyrir því að "Með allt á hreinu" hafi verið endirinn á góða tímabili Stuðmanna, eða upphafið á endinum (langur endir sem er þá búinn að standa yfir í meira en 20 ár). Á árunum fyrir 1980 var ótrúleg sköpunargleði í gangi hjá Stuðmönnum og er nóg að benda á plöturnar "Sumar á Sýrlandi" og "Tívolí" því til stuðnings. En þeir tengdust einnig ótal mörgum öðrum skemmtilegum verkefnum eins og Þursaflokknum og Spilverki þjóðanna. Áðan var ég að hlusta á plötuna með Hrekkjusvínunum (sem hluti Stuðmanna kom að) sem verður að teljast meðal allra bestu barnaplatna sem hafa komið út á Íslandi, já jafnvel bara meðal bestu íslensku platnanna. Ótrúlega mikið af góðu og frumlegu efni sem liggur eftir þessa menn frá þessum árum um og fyrir 1980.
En ... það er erfitt að toppa sjálfan sig. Það er eitthvað sem gerist sem veldur því að listamenn ná ekki að endurtaka fyrri snilld. Kannski er sköpunarbrunnurinn orðinn þurrausinn, eða ferskleikinn farinn eða menn hættir að koma á óvart. Hvað sem veldur, þá eru menn dæmdir til að lifa í skugganum af sjálfum sér og verða að lifa við það að allt nýtt sem þeir gera er borið saman við fyrri meistaraverk. Þetta er spurningun um að kunna að hætta á toppnum, kunna að velja réttan tímapunkt til að leggja verkefnin frá sér. Listin er að kunna að hætta. Hver hefur ekki heyrt vangaveltur um öll meistarverkin sem heimurinn missti af af þegar Bítlarnir hættu, en ég segi nú bara "Takk Paul, John, George og Ringo fyrir að bjarga okkur frá öllum leiðinlegu plötunum sem þið hefðuð gert!"

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home