Olitorian

11.11.05

Að vera eða vera ekki .....töffari.

Var að keyra í vinnuna með Rás 2 í útvarpinu eins og svo oft áður. Kom lag af nýrri plötu með Guðrúnu Gunnars og einhverjum gaur að norðan sem ég man ekki nafnið á. Lagið var "Allt á floti". Skapti Ólafsson söng þetta fyrir mörgum árum á snilldarlegan hátt, alveg ótrúlega svalur. Nýja útgáfan er ekki svöl, svona soldið tilgerðarleg. Þegar Skapti söng þetta fór allt á flot hjá kvenfólki þessa lands, en það er þurrkutíð hjá þeim norðlenska. Þetta sannar enn einu sinni að annað hvort eru menn töffarar ... eða ekki. "You have it, or you don't".

3.11.05

PIRR

Nú er ég pirraður!!!!!

Ég var búinn að skrifa langa og merkilega grein hér inn um tónlistarupplifun á Kýpur, frábæra tónlist frá Antony and the Johnsons og þéttan grip frá Bruce gamla Springsteen. Hefði líklega orðið lengsta innlegg mitt á þessa síðu til þessa.
En nei - þá datt síðan út og allur textinn með!!
Og nú er ég pirraður.