Matti Óla, Sex Division og Hobbitarnir
Fyrst ég er byrjaður verð ég að láta nokkra tónlistarpunkta fljóta í loftið.
Matti Óla er farinn að fá verðskuldaða athygli fyrir diskinn sinn. Hann var með útgáfutónleika í Frumleikhúsinu í Keflavík um síðustu helgi og tókust þeir frábærlega, fullt hús og frábær stemning. Ég var í bandinu - var gaman. Nú er minni vinnu við þetta útgáfuverkefni hans Matta í raun lokið, nú stendur hann á eiginn fótum með þetta. Hann verður ekki í vandræðum með það, er að verða þjóðþekktur tónlistarmaður. Ég er stoltur af því að eiga töluvert mikið í plötunni hans og gaman að geta klárað verkefnið á svo glæsilegan máta sem útgáfutónleikarnir voru.
Fékk eintak af plötunni sem Sex Division var að gefa út, en hún ber heitið "Lengi lifi lýðveldið". Í Sex Division eru 5 Suðurnesjamenn sem taka tónlistina svona misjafnlega alvarlega. Platan ber þess enda nokkur merki, stundum er spilamennska óþétt og hljómur ekki góður. En það breytir því ekki að platan er skemmtileg og grípandi. Pólitískir textar sem hitta beint í mark og lög sem festast auðveldlega í minninu. Ég vil sérstaklega hrósa þeim félögum fyrir skemmtilegan og skapandi hljóðfæraleik (og góðan söng). Lifandi bassaleikur, frumlegur gítaleikur og skondin hljómborðskot gera tónlist Sex Division mun skemmtilegri og meira heillandi en margt það sem íslenskir atvinnutónlistarmenn eru að gera þessa dagana. Það sem mér finnst þó skemmtilegast er að nokkrir félagar skuli koma saman til að búa til tónlist og sýni þann dug að gefa hana út. Þannig að ég segir bara: Til hamingu Sex Division með skemmtilega plötu.
Einkun frá mér: 3,5 gítarnögl af 5 mögulegum.
Og svona að síðustu: Hobbitarnir eru á fullu, spila út um allar trissur og hafa gaman af því. Þessa helgina er það fimmtudagur á Traffic í Keflavík og síðan föstudagur og laugardagur á Paddy's í sama bæ. Um síðustu helgi var það skemmtun hjá Opnum kerfum í Reykjavík og í næsta mánuði er það árshátíð hjá einhverju félagi í Reykjavík ásamt pöbbaspili. Hobbitarnir eru bara í nokkuð góðu spilaformi þessa dagana.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home