Jæja - er maðurinn á lífi?
Já hann er á lífi, gefur sér bara ekki tíma til að skrifa inn á bloggið sitt. Þegar maður er í 100% vinnu, í háskólanámi (að hluta), spilandi nánast hverja helgi, að taka nýja húsið sitt í gegn (og ekki fluttur í það), með fjölskyldu, í bæjarstjórn og þátttakandi í félagsstörfum verður eitthvað að stitja á hakanum. Hjá mér er það þessi bloggsíða sem fær að reka lestina. En haldið trúnni - það koma betri tímar og þá verður uppfært oftar hér í þessum glugga mínum til alheimsins.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home