13.5.05

Snilldin leynist víða

Var að rúlla Reykjanesbrautina heim seint á föstudagskvöldi og var með opið fyrir útvarpið þar sem Rás 2 flæddi um rafrásir undir styrkri stjórn Freys Eyjólfssonar. Það sem ég heyrði sannfærði mig um það snilldin leynis víða. Fyrst var B-hliðin á Abbey Road Bítlanna spiluð í heild sinni, vá! Hvað er hægt að segja, þessir strákar frá Liverpool skilgreindu hugtakið snilld. Síðan kom Dolly Parton með "9 to 5". Önnur snilld, frábærlega sungið og spilað lag. Hið fullkomna popplag með frábærum texta. Synd að Dolly litla sé aðallega þekkt fyrir brjóstin sín, því þó þau séu stór eru þau ekki stærri en tónlistarhæfileikarnir hennar. Síðan kom þriðja snilldin þegar Skítarmórall flutti "Farin" eftir Einar Bárðarson. Nú halda einhverjir að ég hafi misst það, en ég held ekki. Þetta er fullkomið íslenskt sumarpopp, fínt lag sem er vel flutt og smekklega (t.d. mjög snyrtilegt gítarsóló - ekki of mikið og ekki of lítið). Einhvern veginn eru þeir ekkert að pressa sig við hlutina, bara rennur af sjálfu sér. Á hverju sumri eru gefin út tugir laga sem eiga að verða "hittari" ársins, en þau komast fá með tærnar þar sem "Farin" er með hælanna.

Fjórða og síðast snilldin er náttúrulega Rás 2, hvar annars staðar hefði ég getað heyrt í Bítlunum, Dolly Parton og Skítamóral á sama hálftímanum?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home