6.5.05

Hobbitarnir hoppa og skoppa út um grænar grundir

Það er nú kominn tími til að segja fréttir af Hobbitunum hérna á síðunni. Þeir félagarnir hafa haft nóg að gera að undanförnu og áttu t.d. bara eina fríhelgi í apríl. Maí byrjar með sömu látunum. Um síðustu helgi voru Hobbitarnir að spila á Paddy's í Keflavík og náðu þessari líka flottu stemmningu, sérstaklega á laugardagskvöldinu. Þá var fólk farið að dansa upp á borðum, sveifla sér í loftinu og ég veit ekki hvað.

Og þessa helgina á að halda áfram að gleðja fólk. Á föstudagskvöldið er spilað á heimavelli, en þá ætla Hobbitarnir að spila á Mamma mía í Sandgerði. Það verður forvitnilegt að sjá hvort Sandgerðingar mæti nú ekki til að sjá sína menn að verki, eða hvort það sannist að upphefðin komi að utan. Óli Viggó verður með bjórkvöld og eflaust verður fullt af fólki komið í góðan gír þegar Hobbitarnir hefja upp raustina þegar líður að miðnætti.

Á laugardagskvöldið munu Hobbitarnir síðan spila í Höfuðborginni í fyrsta skipti þegar þeir sjá um fjörið í Holtakránni. Sú krá er í Grafarholtinu, sem er nýjasta hverfið í borginni, og er víst voðalega flott. Vertinn þar er enginn byrjandi, því það er enginn annar en sjálfur Stefán Sigurðsson, Stebbi á Vitanum. Það verður því Sandgerðingastemmning í borginni á laugardaginn. Það verður að vísu í nógu að snúast hjá mér á laugardagskvöldið sem byrjar á því að ég rúlla í Reykjavík til að stilla upp á Holtakránni. Þegar græjurnar eru komnar upp bruna ég svo til baka til að vera uppoðshaldari í búningauppboði á herrakvöldi Reynis í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Þar má ég þó ekki stoppa lengi, því ég verð að vera kominn aftur á Holtakránna upp úr kl. 11:00 til að byrja spila þar. Þannig að það er nóg að gera hjá Hobbitum þessa helgina.

En fyrst ég er að tala um búningauppboð hjá Reyni..... ég fékk að kíkja um daginn á nýja búninga Reynisliðsins. Hummelbúningar sem eru klassískir og einfaldir. Sparisjóðurinn í Keflavík er orðinn aðal styrktaraðilinn og er með auglýsingu framan á búningunum (Tros og Nesprýði að aftan). Vel valið hjá stjórninni - flottir búningar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home