Will Smith & Faith No More
Það er erfitt að viðurkenna það, en mér finnst Will Smith skemmtilegur tónlistarmaður!
Ég komst að þessu í morgun þegar ég var að keyra í vinnuna. Klukkan var 7:15 og ég settist upp í bílinn minn bara í nokkuð góðu föstudagsskapi. Kveikti á útvarpinu sem var sillt á XFM þar sem Brain Police var að byrja á einhverju lagi sem mér fannst ekki skemmtilegt og því skipti ég yfir á Rás 2. Þar var Skítamórall að spila sitt nýja lag sem mér fannst ekki þess virði að eyða tíma í. Skipti strax yfir á Létt þar sem nýja Idol-stjarnan var að syngja lag eftir Stebba Hilmars (og fleiri) og mér fannst full ástæða til að finna eitthvað skemmtilegra. Datt inn á FM957 þar sem Will Smith var að byrja á nýja laginu sínu sem heitir Switch.... og á það gat ég hlustað! Lagið hentaði vel mínu góða föstudagsskapi, ég gat lamið taktinn á stýrið og látið kollinn dansa með. Niðurstaðan af þessu skiptingarferli við útvarpið var að mér þætti Will Smith skemmtilegur tónlistarmaður, en inn í það spilar væntanlega að fyrir 1-2 dögum sá ég hann taka flottasta "show" sem ég hef séð í Jay Leno. Eitt það mikilvægasta sem tónlist getur gert er að fá mann til að fara í gott skap og það nær herra Smith að gera með þessu nýja lagi.
Eftir að Will Smith kláraði kom eitthvað leiðinlegt og ég datt aftur á XFM. Þar var Faith No More að byrja á slagaranum "We Care A Lot" þar sem Chuck Mosley syngur. Fyrir þá sem ekki vita þá var Chuck Mosley söngvari í þessu merkilega rokkbandi á undan snillingnum Mike Patton. Ég hlustaði á þetta lag sem er alveg hundleiðinlegt þrátt fyrir að spilamennskan sé í raun klassísk Faith No More frammistaða. Lagið er leiðinlegt að því að söngurinn er lélegur og textinn líka. Niðurstaðan, söngvari getur skipt öllu máli fyrir hljómsveit - getur ráðið því hvort bandið er ein áhrifamesta rokkhljómsveit sögunnar eða bara enn eitt slakt bandið frá Kaliforníu!
