15.3.05

Líf

Bara að láta vita að ég er enn lifandi .... (var skotið fast á mig um síðustu helgi að ég væri latur við að færa fréttir hér inn - þannig að ég verð að reyna bregðast við því).

Svona í leiðinni er allt í lagi að læða því inn að Hobbitarnir eru lífi og töluvert á ferðinni þessa dagana. Um síðustu helgi héldu þeir uppi stuðninu á árshátíð starfsmanna Iðnskólans í Hafnarfirði og um næstu helgi ætla þeir að gera allt vitlaust á Kaffi Duus í Keflavík (bæði föstudags- og laugardagskvöld). Eftir afslöppun um páskana mæta þeir síðan galvaskir á Paddy's 1. og 2. apríl til að sjá til þess að allir geti glaðst á góðri stundu.

Síðan má læða því að næsta upptökutörn með Matta er handan við hornið, ætlum að læða okkur í Geimstein um næstu helgi og taka upp 3-4 lög. Í þetta skiptið er það bandið sem ætlar að spila inn (Matti, Smári, Óli, Halli Valli, Hlynur og ég). Vorum að æfa efnið síðasta laugardag og verð að viðurkenna að þetta hljómar spennandi (spiluðum síðan efnið "unplugged" í Aftan festival-teiti heima hjá Hlyni á laugardagskvöldi og ekki hljómaði það verra þá).

Spennið beltin - lífið er spennandi og margir skemmtilegir hlutir að gerast. Takið þátt!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home