Megi árið verða sem flestum farsælt!
Þá er ballið byrjað, komið nýtt ár - 2005!
Verður vonandi fullt af skemmtilegum uppákomum og tækifærum.
Það verður eflaust nóg að gera hjá mér (eins og venjulega). Það helsta sem er framundan í tónlist:
- Vinna að nýrri plötu með Matta. Upptökur hefjast líklega 15. janúar og fyrstu æfingar verða um næstu helgi. Smári, Halli Valli, Óli trommari hafa samþykkt að vera með í verkefninu sem og Hlynur. Mikill kraftur í bróður mínum og stefnir allt í að þetta verði skemmtilegt verkefni. Ef allt gengur að óskum gæti komið út plata í sumar eða haust.
- Vinna með Smára og Fríðu Dís í þeirri tónlist sem þau hafa verið að flytja sem Fríða og Dýrið. Óli trommar einnig með hérna og Hlynur verður gítaristi og söngvari. Hugmyndin er að æfa saman hljómsveit sem verður nógu þétt til að vera gott tónleikaband. Þróa þessu spennandi tónlist aðeins áfram. Vonandi næst að taka upp á árinu og helst heila plötu, efnið er til.
- Hobbitarnir ætla að halda áfram að gleðja. Við Hlynur spiluðum síðast í einkasamkvæmi í Keflavík daginn fyrir gamlárs og erum næst bókaðir í annað einkasamkvæmi 15. janúar. Stefnan er að hafa sem mest að gera og eitt af áramótaheitunum var að fara vinna markvisst í markaðssetningu Hobbitana. Við verðum eitthvað á Paddy's í Keflavík, eflaust líka á Mamma mía í Sandgerði og fáum vonandi að prófa fullt af nýjum stöðum á nýju ári. Þá erum við að gera okkur vonir um að fá að spila í alls konar mannfögnuðum s.s. afmælisveislum, giftingum, skírnum og jafnvel jarðarförum. Við erum til í að skoða allt.
- Fyrir utan þetta eru ýmsar skemmtilegar pælingar í gangi. Ég ætla að halda áfram að vinna í minni eigin tónlist, loks eru einhverjir farnir að sperra eyrun við því sem ég er að gera og það gefur manni aukinn kraft. Ég stefni að því að halda áfram að semja (samdi nokkur lög á árinu 2004, þau fyrstu í nokkuð langan tíma) og vonandi verða tækifæri til að koma því efni á framfæri. Ég held að sjálfsögðu áfram að vinna með Aftan festival hópnum og kem vonandi eitthvað fram undir merkjum hans. Við eigum heimboð á Rás 2 á nýju ári og aldrei að vita hvað kemur út úr því. Það er stefnt á að gefa út "Aftan festival 2" á árinu og vonandi að ég eigi lag þar. Væri jafnvel hægt að halda því fram að maður væri farinn að ganga með sólóplötu í maganum, en meðgangan er samt kominn stutt á veg. Síðan eru einhverjar pælingar á lofti um að stofna lítið útgáfufyrirtæki (ásamt fleirum) sem gæti staðið á bak við Aftan festival plötu og jafnvel fleiri verkefni, útgáfufyrirtæki sem gæfi grasrótinni tækifæri til að spretta.
Eins og sést er margt spáð og "spekúlerað". Hvað verður kemur í ljós, en með markvissri vinnu gætu einhver af ofantöldum verkefnum náð að blómstra :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home