23.1.05

Boltinn farinn að rúlla

Þá eru fyrstu þrjár vikur nýja ársins liðnar og hlutir smám saman að komast í gang. Hobbitarnir eru búnir að spila einu sinni á árinu og verða um næstu helgi að spila á Paddy's í Keflavík. Akkúrat núna er ég í miðjum klíðum við að kaupa hljóðkerfi sem er aðallega hugsað fyrir Hobbitana og vonandi spilum við í gegnum það um næstu helgi. Nú er bara að hafa nóg að gera svo að fjárfestingin skili sér til baka :)

Annars er skemmtilegt að segja frá því að vinna við plötuna hans Matta er byrjuð. Vorum í Geimsteini síðasta sunnudag og tókum upp tvö lög. Kemur bara nokkuð vel út og verður gaman að vinna áfram að þessu verkefni. Stefnt að því að klára upptökur um páska og gefa út plötu í sumar. Vel gert Marteinn!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home