Olitorian

16.12.04

Hobbitarnir á ferðinni um helgina

Hobbitarnir verða á ferðinni um helgina því við Hlynur verðum á sviðinu á Paddy's í Keflavík á föstudags- og laugardagskvöldið. Að sjálfsögðu lofum við fínni stemningu, brjáluðu stuði fram á nótt. Á laugardaginn er útskrift í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og því mikil umferð í næturlífinu og væntanlega mikið sungið á vinalega öldurhúsinu við Hafnargötuna. Um miðjan dag á laugardaginn verðum við Matti bróðir á ferðinni í Nýrri vídd í Sandgerði og spilum fyrir gesti listsýningar sem þar er. Þannig að það er fullt hjá mér að gera í tónlist þessa síðustu helgi fyrir jól.

12.12.04

Próflok og meiri tónlist

Nú er gleði mikil - prófin búin :)
-en svona til að hafa söguna rétta - ég er búinn með þetta eina próf í Háskólanum sem ég þurfti að taka nú í haust og held að mér hafi gengið bara nokkkuð vel. Það styttist því í jólafrí frá skólaönnum - eitt verkefni sem þarf að skila um næstu helgi - og síðan bara jólin.

En það er hins vegar fullt að gera í spilamennsku. Við héldum Aftan festival á Paddy's í síðustu viku og þar kom ég fram ásamt Matta og Fríðu og Dýrinu. Gekk fínt, það er alltaf gaman að spila fyrir nýja áheyrendur. Daginn eftir mættum við í útvarpið og spilðum í beinni í Popplandi á Rás 2. Var sent út frá Samkaupum í Njarðvík, var soldið sérstakt að spila innan um innkaupakörfur og í takt við pípið í strikaskönnunum. Ég spilaði "Aldrei aftur", tókst bara ágætlega og ég hef fengið fín viðbrögð. Var meira að segja bókaður til að spila í veislu af konu sem heyrði þetta í útvarpinu og líkaði vel. Smári og Fríða spiluðu líka og stóðu sig fínt og í restinu tókum við öll smá jólasyrpu saman (Halli Valli bættist í hópinn og Matti söng með): "Jólasveinar ganga um gólf" og "Ég vil harðan jólapakka". Er nú alveg kominn tími til að þetta skemmtilega lag eftir Pálmar Guðmundsson fái hærri stall meðal íslenskra jólalaga. Við Hlynur spiluðum líka á Paddy's í síðustu viku og erum þar aftur um næstu helgi. Verður örugglega mikið fjör því á laugardaginn er útskrift í F.S. og væntanlega mikið af hvítum húfum á ferðinni.

En nú er samt aðal tilfinningin léttir og svona smá spennufall, það er alltaf gott þegar maður klárar eitthvað stórt verkefni og jú próf í Háskólanum er víst nokkuð krefjandi verk.