14.11.04

Úlfhamssaga

Ég átti einstaka stund í gærkvöldi. Við Katrín skellum okkur í Hafnarfjarðarleikhúsið og sáum Úlfhamssögu - og þvílík upplifun. Frábær uppsetning á gömlu íslensku ævintýri sem varðveittist í munnmælasögum og rýmum. Á heimasíðu Stofnunar Árna Magnússonar (www.am.hi.is) er að finna eftirfarandi:

Úlfhams saga segir frá Hálfdani vargstakki Gautakonungi og Úlfhami syni hans og átökum þeirra feðga við menn og vættir. Sagan er varðveitt í gömlum rímum, auk þriggja lausamálgerða frá 17., 18. og 19. öld, sem allar byggja beint eða óbeint, á efni rímnanna. Rímurnar hafa ýmist verið nefndar Úlfhams rímur eða Vargstökur.

Ég segir bara - Hringadróttinssaga hvað - þetta var ekki síður mögnuð upplifun - tilfinningar, ævintýri, hasar, átök, ástir og hatur. Leikararnir stóðu sig frábærlega (gaman að sjá Suðurnejsamenn þar á meðal), sérstaklega Ragnheiður Steindórsdóttir sem var mögnuð sem Hildur, drottningin illa. En það er Eivör Pálsdóttir sem fullkomnar þessa sýningu. Hún sér um tónlistina, syngur, spilar á trommur og gítara, bæði rafmagnaða og acoustíska. Þvílík rödd, þvílíkur tónlistarmaður. Ég var bergnuminn í lok sýningarinnar. Mig langaði standa upp og hrópa húrra, en var svo lamaður af hrifningu að ég rétt hafði mátt til að klappa. Leikstjórinn María Ellingsen hefur sannarlega sett upp meistarastykki!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home