13.11.04

Jólin koma snemma í ár

Jólin koma snemma hjá mér í ár :)
Á fimmtudaginn fékk ég loks nýja (gamla) gítarinn minn í hendurnar. Gripur sem ég pantaði af eBay - kemur til mín frá West Babylon á Long Island. Þetta er Giannini gítar, sem er framleiddur í Sao Paulo í Brasilíu í apríl 1969. Hann er því 35 ára gamall! Er lítill klassískur gítar, með alveg yndislegt "sound". Það sést svo sannarlega á honum hvað hann er gamall og það gerir hann einmitt svo sjarmerandi. Það má segja að hann sé fallega ljótur :) Annars getið þið bara kíkt á þessa slóð til að sjá myndir af gripnum :)
http://cgi.ebay.com/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&rd=1&item=3747901126&ssPageName=STRK:MEWN:IT

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home