Á heimavelli á laugardaginn
Ég og Hlynur þreytum frumraun okkar á "heimavelli" á laugardaginn (27. nóvember 2004), en þá spilum við á Mamma mía í Sandgerði. Það er frítt inn til kl. 01:00, en eftir það ætlar Toni vert að rukka 500 kall inn. Verður örugglega mikið líf og fjör og væri gaman að sjá sem flesta kíkja við. Kjörið, sama hvort maður er kennari nýkominn úr verkfalli eða nemi á leið í próf, að létta aðeins lundina yfir krús og taka lagið með okkur.
Sjáumst á laugardaginn (vonandi). ....og endilega látið þetta berast ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home