Flott kvöld á Paddy's
Við Hlynur spiluðum í fyrsta skipti opinberlega saman síðasta fimmtudag á Paddy's í Keflavík. Þetta átti víst að vera kvöld á vegum F.S., en fæstir gestanna voru þaðan!?!
Það gekk bara vel hjá okkur - fín mæting og ágæt stemning. Gaman að spila á þessum stað.
Mér brá samt aðeins. Þegar ég mætti að stilla upp um kvöldmatarleytið (og þá helv... syfjaður) hélt ég að við myndum byrja að spila milli kl. 22:00 og 23:00 og yrðum búnir um eitt leytið. Nei, annað kom í ljós. Við byrjuðum jú að spila fljótlega upp úr kl. 23:00, en hættum ekki kl. 01:00, heldur tókum þá pásu og byrjuðum aftur kl. hálf tvö og spiluðum til þrjú. Mikið var ég þreyttur þegar ég vaknaði á föstudagsmorguninn. Greinilegt að það er langt síðan ég var á ferðinni á skemmtistað á fimmtudagskvöldi síðast.
Martininn minn stóð fyrir sínu - voru nýjir þykkir og sterkir GHS-strengir í honum. Hljómaði vel (er reyndar soldið bjartur - þarf að finna lausn á því), var frábært að spila á hann og allir strengir heilir allt kvöldið ;-)
Við Hlynur erum bókaðir næst á Mamma Mía í Sandgerði laugardaginn 4. desember og síðan aftur á Paddy's í Keflavík 17. og 18. des. sem er helgin fyrir jól. Ef þið vitið um verkefni handa okkur sendið mér línu á otolafsson@hotmail.com
Annars var að detta inn hugmynd að nafni fyrir okkur: "Hobbitarnir"
Hvernig lýst ykkur á???

1 Comments:
Til hamingju. Fín síða hjá þér Óli. Það hefur greinilega verið rosalegt stuð á Paddys úr því að spilað var svona lengi og það í miðri viku.
Ég vissi hins vegar ekki að þú værir svona hrifinn af Þ-lista myndinni af þér????
kv lindabjörk
Skrifa ummæli
<< Home