13.11.04

Bræðraspjall

Matti bróðir kíkti til mín og Katrínar í kaffi og smá konna í gærkvöldi. Eins og svo oft hjá okkur bræðrunum gleymdum við okkur í spjalli um tónlist. Að sjálfsögðu sáu listamenn í fremstu röð um að flytja okkur tónlist á meðan við ræddum málin og má sem dæmi nefna Elliott Smith, Gilberto Gil, Harry Connick jr., Bjarni Tryggva, Jimi Tenor og Dave Matthews, ekki amaleg blanda þarna á ferðinni. Matti var að sjálfsögðu að tékka á nýja gítarnum mínum og líkaði vel! Matti sagði mér frá næstu verkefnum í kringum Aftan hópinn - verður töluvert mikið að gera næstu vikurnar:
*Fimmtudagurinn 25. nóvember - Aftan festival á Paddy's í Keflavík
*Sunnudagurinn 5. desember - listamenn úr Aftan festival-hópnum koma fram á opnun listsýningar í Nýrri vídd í Sandgerði.
*Föstudagurinn 10 . desember - Aftan festival á Mamma Mía í Sandgerði
Síðan verðum við bræðurnir að spila á hátíð hjá eldri borgurum í Sandgerði einhvern tíman í desember og þá kemur til greina að það verði Aftan-jólahátíð á Mamma mía nálægt jólunum.

Þannig að - verður nóg að gera hjá manni í tónlist næstu vikurnar (ofan á þetta bætast nefnilega bókanir sem eru komnar hjá mér og Hlyni).

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home