Námsraus og fleira
Nú styttist í að þetta misseri klárist hjá manni í Háskóla Íslands. Fyrir þá sem ekki vita er rétt að taka fram að með vinnu (fyrir þá sem ekki vita: ég starfa hjá Hafnarfjarðarbæ sem forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Versins) er ég að föndra við að læra kennslufræði til kennsluréttinda, kláraði 15 einingar síðasta vetur og stefni að því að klára aðrar 15 í vetur og útskrifast með kennararéttindi næsta sumar. Í náminu er ég þessa dagana er ég að vinna við hópaverkefni sem þarf að skila í síðasta lagi 6. desember og síðan er próf laugardaginn 11. desember. Þá er ég líka að bjástra við verkefni sem tengjast námskeiði í Upplýsingatækni, þ.á.m. er þetta blogg!!
Já þetta blogg - ég náttúrúlega þvingaður til að setja það upp - en er að komast að því að það er ágætt að eiga smá horn til að koma pælingum sínum á framfæri (kíkið líka á heimasíðuna mína www.hi.is/~olafuro, á soldið í land ennþá en lofar góðu). Þegar ég byrjaði að blogga setti ég mér ákveðinn ramma fyrir þessa bloggsíðu, það er jú nauðsynlegt að setja sér einhver mörk í öllum verkefnum. Ég ákvað að á blogginu myndi ég bara tala um hluti sem tengdust tónlist og minni eigin tónlistarsköpun á einhvern hátt. Allt í einu datt það í kollinn á mér að kannski væru umsjónarmenn námskeiðsins í upplýsingatækninni að óska eftir því að maður héldi úti bloggi sem tengist náminu. Það væri vettvangur fyrir vangaveltur og fullyrðingar tengdum upplýsingatækni og kennlsufræði. Ef það er pælingin hjá þeim þá verð ég að valda þeim vonbrigðum. Ég hef tekið ákvörðun um að ritstjórnarstefnu þessarar vefsíðu og henni verður ekki breytt!
Til að svíkja ekki þá stefnu að þetta blogg eigi að snúast um tónilst er rétt að minnast á að það verður Aftan festival á Paddy's í Keflavík miðvikudaginn 1. desember n.k. Fyrsta Aftan festivalið sem er haldið utan Sandgerðis. En nánar um það síðar.
